Um Mig - About Me
Þetta er dóttir mín, Eva Sóley. Hún er 10 ára og er byrjuð að sýna hjá ungum sýnendum hjá HRFÍ. Hún kann þetta sko!!!!
Hér er hún að stilla upp Bonsai A Silver Dolllar "Dollar"

Þegar ég tala um fjölskyldu þá á ég við fyrst og fremst börnin mín . Ég er svo lánsöm að eiga 2 yndisleg börn, Maxime Smára sem er 16 ára og Evu Sóley 10 ára.
Fyrsta Yorkann minn fékk ég fyrir 13 árum (1994). Ég vissi að ég vildi lítinn hund og fór á stúfana að leita. Komst í kynni við Elvar sem var með got þá. Hann smitaði mig illilega á þessari tegund hunda sem ég hef haldið mig við síðan.
Ég var svo heppin að komast undir verndarvæng Elvars og lærði mikið af honum, meðal annars að sýna tegundina. Fyrsta tíkin mín og ég, Ístopps Apfrodite (Ruby) vorum með brennandi áhuga en hún Ruby mín hafði ekki alveg útlitið með sér fyrir sýningar. Elvar fékk mig því til þess að taka rakka í gotinu á eftir 1995. Ég sem ætlaði aldrei að fá mér annað en tíkur, haha. Sá hundur heitir INTUCH ÍSCH Ístopps Big Byron (Jagger) og var mikil kátína á heimilinu þegar hann kom sem lítill hvolpur. Já og síðan með mikilli og ánægjulegri vinnu gekk mér vel með hann í sýningum. Hann varð alþjóða og íslenskur meistari, meðal annars lenti hann í 4ða sæti besti hundur sýningar (BHS) og eftir það var ekki aftur snúið!
Flutti ég svo inn rakka frá Svíþjóð, INTUCH ÍSCH Presstop´s Crash Boom Bang (Púki), og gekk enn betur með hann. Hann varð alþjóða og íslenskur meistari og árið 2003 lenti hann í 3ja sæti besti hundur sýningar (BHS) og endurtók þann sigur aftur 2004.
Ég ætlaði aldrei út í ræktun sjálf, en þakka Jagger fyrir slysið sem kom fyrir hjá mér þegar Ruby og Jagger áttu fyrsta gotið, 2 tíkur. Út frá þeim og með hjálp Púka, hef ég komið mér upp stofni sem ég er stolt af.

Við búum í Mosfellsbæ, þar sem yndislegt er að vera. Stóran garð þar sem bæði fjölskyldan og hundarnir hafa nægt pláss.
Var ég svo lánsöm að finna pláss fyrir okkur þar sem hundarninr hafa sína 100fm vel girta lóð utaf fyrir sig, en fá að sjálfsögðu að hlaupa um með okkur á góðviðris dögum.