Rakkarnir mínir - My Boys

INTUCH ISCH Ístopps Big Byron - "Jagger"

Jagger

Fæddur: 22.2.1995

JaggerHann var annar hundurinn sem ég eignaðist 1995 og fyrsti "alvöru" sýningarhundurinn minn. Þegar ég hugsa aftur í tímann, hvað þetta var nú (og er enn í dag) gaman að mæta með hann á sýningarnar. Hann var gríðalega flottur á gólfinu, sveif um það reistur og stoltur. En sá lang hraðastur í gangi. Gleymi því aldrei þegar ég bað Elvar um að taka við honum í einni sýningunni, haha. Hann átti erfitt með að fylgja honum eftir. Það má segja að Jagger hafi haldið mér í þjálfun, var ég yfirleitt lafmóð eftir að hafa farið með hann hringinn.

Nú er hann kipptur niður og hinn besti heimilishundur, á tólfta ári. Ég gat lítið notað hann í ræktun á fyrri árum vegna vöntunar á tíkum en sem betur fer þá hefur það breyst. Árið 2005 var hann notaður hjá Klöru (Rosetopps) á tíkina hennar Jenny með góðum árangri og nú síðast hjá mér 2006 á Amy. Hef ég ákveðið að setja hann á 2 tíkur hjá mér á þessu ári, hann er jú orðinn gamall. Hans ættartölur eru eitthvað sem ég vil halda í.

ISCH.SUCH.INTUCH Presstop`s Easy Going "Bobo" x Presstop`s Let´s Dance "Letty"

Sjá ættbók - See pedigree Sjá myndaalbúm - See photoalbum

INTUCH ISCH Presstop´s Crash Boom Bang - "Púki"

Púki

Fæddur: 22.2.1995

sænski fáninn

Púki bættist við hundahópinn um páskana 2000. 6 mánaða kríli beint úr Hrísey. Þvílíkur prakkari sem hann var, og allra yndi í fjölskyldunni. Byrjun hans á sýningum HRFI var bara skemmtileg.

Það var 8 október 2000, á eins árs afmælisdegi hans. Jill og Jessica (Presstop´s) ræktendur hans, komu til landsins til þess að vera viðstaddar. Á meðan hann gekk hringinn sungu þær afmælissönginn. ;o) og þeim til heiðurs fékk hann sitt fyrsta Ísl. meistarastig. Þessi sýning verður mér alltaf fersk í minni. Tveim sýningum seinna var hann orðinn Ísl. meistari. Það sem hann hafði fram yfir aðra sýningahunda sem ég hef átt, var þessi "elegance" mikið vildi ég að ég fengi hann í erfðir hjá mér. Það var yndi að sýna hann. Þau voru ófá skiptin sem hann fór í BHS m.a.  lenti í tvígang í 3 sæti þar.(2003&2004)

Oft var hann orðinn þreyttur seinni part dags, sýningarnar töfðust oft  í þá daga. Man ég best eftir því, oftar en einu sinni, að við biðum klukkutímunum saman eftir úrslitunum. Þegar komið var að okkur, neitaði hann að hreyfa sig, togaðist á í ólinni,en...um leið og hann labbaði inn á gólfið fór hann í gang sem aldrei áður. Hann var ótrúlegur, langaði ekki meir, en gerði alltaf það sem af honum var ætlast.  Ég lánaði hann til ræktanda síns í Svíþjóð árið 2005 í undaneldi, en því miður kom hann ekki aftur heim. Dag einn fannst honum einkar sniðugt að elta kött út í skóg og kom aldrei aftur. Hans verður sárt saknað.

SUCH Lil`s I Got a Kick Out of you x Mendes Miss O´Mally

Sjá ættbók - See pedigree Sjá myndaalbúm - See photoalbum

C.I.B. ISCH Swedetop´s Dare Devil - "Elmo"

Elmo
Jón Svavarsson   (C)

4 x CACIB

elmo

 

Fæddur: 5.4.2006

INTUCH. ISCH Ístopps Big Byron "Jagger" x Fanneyjar Bonny out of Africa "Bonní"

Sjá ættbók - See pedigree Sjá myndaalbúm - See photoalbum

ISCh Morpheus Messenger - "Thomas"


Jón Svavarsson   (C)

Fæddur: 5.2.2007

 

Int. Nord. Fin. N.S.Ch. Morpheus Maestro x Ponalite Nessi

finland flag

Sjá ættbók - See pedigree Sjá myndaalbúm - See photoalbum

Bonsai A Silver Dollar - "Dollar"

Dollar
Jón Svavarsson   (C)

Fæddur: 22.8.2006

 

Bonsai Vein of Gold x Bonsai Let it be

Italy flag

Sjá ættbók - See pedigree Sjá myndaalbúm - See photoalbum

Swedetop's Easy Going With A Blast - "Jimi"


Fæddur: 9.11.2006

Ístopps Fargo Easy Going x ISCH Swedetop´s Blast From The Past

Sjá ættbók - See pedigree Sjá myndaalbúm - See photoalbum

 

Swedetop´s Master Of The Game - "Aldo"


Fæddur: 11.03.2010

 

ISCh Morpheus Messenger x Swedetop´s Echoes From The Past

Sjá ættbók - See pedigree Sjá myndaalbúm - See photoalbum

 


Swedetop´s kennel - Sími: 896 3306 - Netfang: